Helsta virkni fréttabréfakerfisins
Virkni sérsniðin að íslenskum aðstæðum
Við þróun og hönnun Outcome fréttabréfakerfisins var markmiðið að setja upp kerfi sem er í senn einfalt en öflugt. Outcome hugbúnaður á margra ára reynslu að baki í farsælum fjöldaútsendingum en milljónir pósta hafa verið sendir út úr kerfum fyrirtækisins. Einnig hafa fréttabréf verið send út með Outcome kerfum í nokkrum mæli á liðnum árum. Á þessum góða grunni var Outcome fréttabréfakerfið smíðað.
Kerfið er í sífelldri þróun og sérstök áhersla er lögð á að útsending úr fréttabréfakerfinu sé með þeim hætti að hámarksárangur náist, þ.e. að sem flestir viðtakendur fái þau fréttabréf sem þeim eru send. Þetta gerist með sérstakri útsenditækni sem Outcome hefur byggt upp. Auðvelt er að fylgjast með árangri útsendinga í tölfræðiyfirliti sem hægt er að kalla fram í kjölfar hverrar útsendingar. Útsenditæknin ásamt smekklega framsettum fréttabréfum eru lykilárangursþættir þeirra sem nýta Outcome fréttabréfakerfið.
Tölfræði fréttabréfaútsendinga.
Það að hafa yfirsýn yfir lestur þess efnis sem sent er út með fréttabréfum gefur notandanum möguleika á að leggja mat á gæði útsendingarinnar þ.e. er efni hennar að vekja athygli og hve stór hluti markhópsins les í raun það sem honum er sent. Outcome fréttabréfakerfið býður upp á yfirlit sem gefur innsýn inn í lestur, tenglanotkun og afskráningar eftir hverja útsendingu.
Meðal annars eru þetta upplýsingar sem hægt er að fá fram með einum smelli.
- Hve mörg bréf fóru út
- Hve margir opnuðu fréttabréfið
- Greining á fjölda sendra bréfa og fjölda opnaðra bréfa
- Hvaða tenglar í fréttabréfinu voru opnaðir
- Hve margir afskráðu sig
- Hve margir sendu bréfið til annarra
Outcome fréttabréfakerfinu fylgir...
- Sérhannað útlit eftir þínum óskum
- Veflægt kerfi og því hægt að vinna og lesa fréttabréf í gegnum hvaða nettengingu sem er
- Auðveld og aðgengileg póstlistaskráning
- Gott viðmót póstlista sem auðveldar flokkun markhópa
- Auðvelt fyrir viðtakendur fréttabréfs að skrá sig á eða af póstlista
Öruggar útsendiaðferðir
Tryggur og öruggur sendingarmáti - minnkar líkur á að pósturinn verði merktur sem ruslpóstur í útsendingu.




