Beint á leiðarkerfi vefsins

Reglur um fjöldasendingar

Reglur um notkun Outcome Fréttabréfakerfisins

Skilmálar og reglur um notkun Outcome fréttabréfakerfisins eru settir fram til þess tryggja að farið séð að íslenskum lögum um fjarskipti og til að koma í veg fyrir óhóflega notkun fréttabréfa í útsendingu óumbeðins tölvupósts eða svokallaðs ruslpósts.

Um leið og gerður er samningur um notkun Outcome fréttabréfakerfisins þurfa viðskiptavinir að samþykkja skilmála sem settir eru fram hér að neðan. Ástæða þessarar kröfu er sú að Outcome hugbúnaður vill koma í veg fyrir misnotkun útsendinga og minnka líkur á að nafn fyrirtækisins og viðskiptavina verði bendluð við vafasamar og jafnvel ólöglegar ruslpóstssendingar.


Lög um fjarskipti 

Outcome hugbúnaður starfar eftir siðareglum um meðferð tölvupósts og útsendingar fréttabréfa. Í öllu er 46gr. laga um fjarskipti frá árinu 2003  fylgt, en þar segir orðrétt:

"Notkun sjálfvirkra uppkallskerfa, símbréfa eða tölvupósts, þ.m.t. hvers konar rafrænna skilaboða (SMS og MMS), fyrir beina markaðssetningu er einungis heimil þegar áskrifandi hefur veitt samþykki sitt fyrir fram.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er heimilt að nota tölvupóstfang við sölu á vörum eða þjónustu fyrir beina markaðssetningu á eigin vörum eða þjónustu ef viðskiptavinum er gefinn kostur á að andmæla slíkri notkun tölvupóstfanga þeim að kostnaðarlausu þegar skráning á sér stað og sömuleiðis í hvert sinn sem skilaboð eru send hafi viðskiptavinurinn ekki þegar í upphafi hafnað slíkri notkun.

Að öðru leyti en mælt er fyrir í 1. og 2. mgr. eru óumbeðin fjarskipti í formi beinnar markaðssetningar óheimil til þeirra áskrifenda sem óska ekki eftir að taka á móti þeim.

Óheimilt er að senda tölvupóst sem þátt í beinni markaðssetningu þar sem nafn og heimilisfang þess sem stendur að markaðssetningu kemur ekki skýrt fram.

Þeir sem nota almenna tal- og farsímaþjónustu sem lið í markaðssetningu skulu virða merkingu í símaskrá sem gefur til kynna að viðkomandi áskrifandi vilji ekki slíkar símhringingar í símanúmer sitt. Áskrifandi á rétt á að fá vitneskju um hvaðan þær upplýsingar koma sem liggja úthringingu til grundvallar.„  


Stefna Outcome gegn óumbeðnum tölvupósti

Allir þeir sem kaupa sér aðgang að Outcome fréttabréfakerfinu skrifa undir samning þess efnis að þeir ætli sér ekki að nýta það í útsendingu óumbeðins tölvupósts. Þeir aðilar sem hyggjast nýta kerfið skulu kalla eftir samþykki einstaklinga eða bjóða þeim að afskrá sig af póstlista í hvert sinn sem fjöldapóstur er sendur.

Með samþykki þessara skilmála áskilur Outcome hugbúnaður ehf. sér þann rétt að hindra eða stöðva tölvupóstsendingar tiltekinna notenda Outcome fréttabréfakerfisins brjóti þeir gegn ákvæðum laga um fjarskipti og/eða gegn þeim ákvæðum sem í samningnum koma fram.  Jafnframt áskilur Outcome hugbúnaður sér þann rétt að víkja viðkomandi viðskiptavini úr viðskiptum liggi rökstuddur grunur um vísvitandi brotlega hegðun ( Komi upp spurningar og vafaatriði í tengslum við útsendingar veitir Guðmundur Gauti Marteinsson allar frekari upplýsingar).


Persónuvernd

Við útsendingu fréttabréfa safnast saman upplýsingar um hegðun viðtakenda s.s. hvort hann las bréfið, hvenær, hvað las hann o.s.frv... Þau gögn eru vistuð hjá Outcome hugbúnaði ásamt upplýsingum um póstlista og eldri fréttabréf. Því er mikilvægt að öryggi þessa ganga sé tryggt m.t.t. til aðgengis og laga um persónuvernd.

Hver notandi Outcome fréttabréfakerfisins fær sérstakt notandanafn og lykilorð inn á sitt eigið kerfi þar sem hann sjálfur stýrir aðgangi og hefur umsjón með sínum póstlistum og fréttabréfum. Tryggt er að enginn nema notandinn sjálfur komist inn á hans vefsvæði.

Öryggi gagna viðskiptavina okkar hefur frá upphafi verið forgangsatriði og taka öryggiskröfur mið af því. Vefþjónninn sem Outcome fréttabréfakerfið sendir frá er staðsettur í sérhönnuðu húsnæði þar sem aðgangsstýring og innbrotavarnir eru með því besta sem gerist. Aðgangi að tölvuverum er stýrt með sérstökum kerfum og öll umferð skráð.

Kerfið er afritað með skömmu millibili til að lágmarka hugsanlegt gagnatap ef um alvarlega vélbúnaðarbilun er að ræða. Afrit eru einnig færð af staðnum í bankahólf reglulega.

Allir starfsmenn Outcome hafa skrifað undir þagnarneyð og stranga skilmála um notkun viðkvæmra persónuupplýsinga.


Kurteisi - Siðsemi - Tillit  

Stefna Outcome er skýr gegn útsendingum á ólöglegum og/eða ósmekklegum fréttabréfum sem gætu sært blygðunarkennd viðtakenda, s.s. klámefni, persónulegt níð, kynþáttahatur, kynjamisrétti, kynningu á ólöglegu hátterni eða vörum.

Allir notendur fréttabréfakerfisins skrifa undir skilmála þess efnis að þeir ætli sér eingöngu að nota kerfið innan þeirra laga sem gilda á Íslandi.  Jafnframt að þeir passi upp á að ekki sé gert á hlut neins í útsendingu fréttabréfa.

Outcome hugbúnaður mun umsvifalaust víkja þeim aðila úr viðskiptum sem er uppvís að lögbroti eða útsendingu á særandi fréttabréfi.  Outcome hugbúnaður ber hins vegar enga ábyrgð á einstökum fréttabréfaútsendingum viðskiptavina en mun bregðast skjótt við ábendingum um óeðlilega viðskiptahætti með tilhlýðilegum hætti.

Tilkynning misnotkunar

Teljir þú að Outcome fréttabréfakerfið sé misnotað, vinsamlegast látið okkur vita með því að senda tölvupóst á netfangið: misnotkun@outcomenewsletter.com eða abuse@outcomenewsletter.com.


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Íslenskt hugvit