360 gráðu mat
Þetta er þekkt frammistöðumatsaðferð sem m.a. General Electric hefur nýtt við mat á frammistöðu og hæfni sinna stjórnenda. Nokkur íslensk fyrirtæki hafa nýtt sér þetta stjórnendamat. Um er að ræða margfaldar kannanir þar sem stjórnendur fara í gegnum sjálfsmat en fá einnig mat undir- og yfirmanna á raunframmistöðu sinni. Sérstök úrvinnsluaðferð er nýtt til að setja gögnin fram. Aðferðin skilar árangri sem felst í því að hægt er að vinna með bæði sterkar og veikar hliðar þeirra sem fara í gegnum matið. Endurteknar mælingar leiða svo í ljós hvort árangur næst.
Hér má nálgast nánara kynningarefni um 360 gráðu mats lausnina hjá Outcome á pdf formi.




