Áskrift
Áskrift að Outcome kannanakerfinu
Aðilar sem gera reglulegar rannsóknir þar sem kannana er þörf geta keypt áskriftaraðgang að kerfinu. Áskriftinni fylgir sérstakt kannanasvæði þar sem þeir geta sjálfir sett upp og rekið sínar kannanir.
Outcome hugbúnaður sér um grunnþjálfun þeirra sem að nýtingu kerfisins koma og styðja þá svo í notkun kerfisins. Öll gögn og kannanir sem aðilanum tilheyra eru honum aðgengileg á sérstöku læstu svæði þar sem hægt er að vinna skýrslur eða flytja gögn til frekri úrvinnslu í öðrum forritum.
Áskrift borgar sig fyrir þá sem ætla sér að gera nokkrar rannsóknir ár hvert, en þá er hlutfallskostnaður hverrar könnunar lægri en ella. Áskriftin hvetur þá einnig til rannsókna sem er jákvætt í flestum tilfellum. Ákvarðanir byggðar á rannsóknum eru oftast betri en þær sem ekki hafa rannsóknir á bakvið sig.
Sé áhugi á áskrift eða almennri kynningu á kannanakerfinu, hafið þá samband.
Umsagnir
„Outcome has offered us great service and a lot of knowledge about websurveys"
Ellen van der Aart Lieman
Actavis - Netherlands




