Öryggi kannanakerfisins
Öryggi kerfisins
Outcome kannanakerfið er vistað á vefþjóni hjá Outcome hugbúnaði ehf. í lokuðu tölvuherbergi. Sérstakt vefsvæði notenda Outcome kannanakerfisins á vefþjóni er varið með 128 bita SSL vottun frá THAWTE. Aðilar án lykilorðs komast ekki í gögnin. Kerfið tengist Internetinu með eldvegg og router.
Meðferð gagna
Öryggi gagna viðskiptavina okkar hefur frá upphafi verið forgangsatriði og taka öryggiskröfur mið af því. Vefþjónninn er staðsettur í sérhönnuðu húsnæði þar sem aðgangsstýring og innbrotavarnir eru með því besta sem gerist. Aðgangi að tölvuverum er stýrt með sérstökum kerfum og öll umferð skráð.
Kerfið er afritað með skömmu millibili til að lágmarka hugsanlegt gagnatap ef um alvarlega vélbúnaðarbilun er að ræða. Afrit eru einnig færð af staðnum í bankahólf reglulega.
Við sjáum til þess að enginn nema notandinn sjálfur komist inn á hans vefsvæði. Hver notandi Outcome kannanakerfisins fær sérstakt notandanafn og lykilorð. Með því hefur notandi aðgang að eigin vefsvæði þar sem hann hefur umsjón með sínum könnunum, svörum og niðurstöðum.
Persónuvernd
Outcome tryggir nafnleynd svarenda. Öll vinnsla á gögnum er órekjanleg til ákveðins einstaklings.
Persónuvernd er sérstök stofnun sem starfar samkvæmt lögum til að vernda persónuupplýsingar hér á landi. Kannanakerfi Outcome hefur fengið jákvæða umsögn Persónuverndar með tilliti til verndar persónuupplýsinga.
ESOMAR
Árið 2005 fór fram úttekt starfsmanna Esomar á vinnubrögðum Outcome hugbúnaðar og í framhaldi af því hefur aðildarumsókn verið samþykkt. Aðild að Esomar gefur starfsmönnum Outcome vottun um eftirfylgni á skýrum siðareglum og gæðastöðlum í tengslum við rafræna rannsóknagerð.
Örugg samskipti
Kannanaferlið er í grófum dráttum þannig að könnuður sendir hugsanlegum þátttakendum beiðni um þátttöku. Könnunin opnast í vafra yfir https eða http. Þátttakandi svarar og kerfið skráir svörin og eyðir um leið öllum persónugreinanlegum gögnum.
Samskiptin milli svarenda og vefþjóna eiga sér stað með http og https. Outcome kerfið útbýr hlaupandi númer fyrir hverja spurningu og hvern svarmöguleika. Það er gert til þess að ef óviðkomandi aðilar komast fræðilega inn í samskiptin þá segja tölugildin þeim ekkert.
Umsagnir
„Verð, þjónustulund og fagmennska til stakrar fyrirmyndar"
Jóhannes Ingi Davíðsson
Framkvæmdarstjóri IMARK




