Skólamat
Mat á skólastarfi hefur fengið aukið vægi í umræðu um skólamál. Því hafa bæði sveitarfélög og stakir skólar tekið upp mælingar á afstöðu nemenda, starfsfólks og foreldra. Þetta er fyrst og fremst gert til að skólinn sjálfur geti metið styrkleika og veikleika sína gagnvart þeim hópum honum tengjast. Byggt á niðurstöðum er svo hægt að takast á við veikleika og byggja á því sem vel hefur verið gert. Einnig geta mælingar af þessu tagi skipt miklu fyrir sveitarfélögin og almenn yfirvöld því miklum fjármunum er varið til menntamála og mikilvægt er að þeim sé vel varið og að menntun ungs fólks sé þannig að þau geti tekist á við framtíðina með sem bestum hætti.
Outcome hugbúnaður býður því skólum og skólayfirvöldum aðgang að kannanakerfinu með þessar mælingar í huga og auk þess hefur verið gerður samstarfssamningur við skólafrömuðina Sif Vigfúsdóttir og Valdimar Helgason en þau hafa útbúið spurningasöfn sem henta vel sem grunnur að mælingum á skólastarfi. Frekari upplýsingar um skólamat má finna á vefsvæðinu http://www.skolamat.is/.
Umsagnir
„Lipurt og hjálpsamt starfsfólk"
Sigrún Ingimarsdóttir
Verkefnastjóri - LSH




