Beint á leiðarkerfi vefsins

Stakar kannanir

Outcome hugbúnaður býður þeim viðskiptavinum sem það kjósa að sjá um uppsetningu og framkvæmd kannana. Fyrir hverja eru stakar kannanir?

Til dæmis:

  • Fyrir þá aðila sem þurfa aðeins að gera eina eða fáar kannanir ár hvert er þetta álitlegur kostur.
  • Fyrir þá sem hafa takmarkaða þekkingu á framkvæmd kannana
  • Fyrir þá sem hafa takmakaða tölvuþekkingu
  • Fyrir þá sem hafa ekki tíma
  • Fyrir þá sem vilja að óháður aðili sjá um framkvæmd könnunar sem hugsanlega varðar þá sjálfa.

Hér sparast tími og fyrirhöfn, sérstaklega fyrir þá sem ekki þekkja til kerfisins. Það er þó einnig mikilvægt atriði að líkur á mistökum og slakri framkvæmd minnka. Líkur eru til þess að betra svarhlutfall fáist og þar með niðurstöður sem eru betri og marktækari en ella.

Áður en hægt er að framkvæma staka könnun þarf að liggja fyrir póstfangalisti eða annarskonar aðgengi að markhópnum. Spurningalisti og kynning á verkefninu. Starfsfólk Outcome getur leiðbeint um framsetningu og frágang þessara gagna.

Outcome hugbúnaður virðir þau lög sem Persónuvernd setur um geymslu og meðferð persónuupplýsinga og tilkynnir Persónuvernd um kannanir þegar við á.

Til að fá frekari upplýsingar um stakar kannanir hafðu þá samband.

Hér eru nokkur dæmi um stakar kannanir sem Outcome býður:


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Outcome vefstjóri vandaðir vefir byggðir á öflugu en einföldu vefumsjónarkerfi