Kosningakerfi
Rafrænar kosningar og atkvæðagreiðslur - aukið lýðræði Outcome hugbúnaður tekur að sér að sjá um alla umsýslu og framkvæmd rafrænna kosninga og atkvæðagreiðslna.
Framkvæmdaferill
Kostir þess að fela óháðum aðila framkvæmd kosninga eru ótvíræðir. Sú reynsla og tækni sem Outcome hugbúnaður ræður yfir, skapar forsendur markvissrar og árangursríkrar framkvæmdar á sama tíma og fyrirhöfn og hlutfallslegur kostnaður er lágmarkaður:
- Kosning / atkvæðagreiðsla með tölvupósti
- Kosning / atkvæðagreiðsla á vef
- Blönduð kosning / atkvæðagreiðsla á vef og með tölvupósti
- Staðbundnar kosningar / atkvæðagreiðslur
- Kosningar með mismunandi atkvæðavægi
Þeir sem nýtt hafa sér þjónustuna
Fjöldi félagasamtaka hefur nýtt sér þjónustu Outcome á þessu sviði og þannig aukið þátttöku í félagsmanna í hinu lýðræðislega ferli en jafnframt náð fram sparnaði við framkvæmd:
- Samtök atvinnulífsins - SA
- Aðildarfélög Bandalags starfsmanna ríkis og bæja - BSRB
- Aðildarfélög Bandalags háskólamanna - BHM
- Samflot bæjarstarfsmanna
- Stéttarfélag í almannaþjónustu - SFR
- Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar - STRV
- Félag starfsmanna Landsbankans
- Félag íslenskra lögreglumanna
- Félag íslenskra flugumferðarstjóra
- O.fl. o.fl....
Öryggi við framkvæmd
Outcome hugbúnaður leggur áherslu á fagmennsku við framkvæmd kosninga. Allir starfsmenn fyrirtækisins hafa skrifað undir þagnareið og aðeins örfáir starfsmenn hafa aðgang að kjörgögnum hverju sinni. Við framkvæmd kosninga / atkvæðagreiðsla og við umgengni um kjörgögn er skýrum verklagsreglum fylgt.
Við öflun upplýsinga er að öllu farið að tilmælum persónuverndar og sem aðili að ESOMAR Evrópusamtaka markaðsrannsóknarfyrirtækja fylgir Outcome hugbúnaður þeirra siðareglum í þessum efnum.
Hafa samband
Hægt er að bóka fund með okkur þar sem við sýnum möguleika kerfisins, kynnum okkar þjónustu og förum yfir framkvæmdaferilinn. Það er að sjálfsögðu án allra skuldbindinga.Það er auðvelt að hafa samband. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:
- Hringdu í síma 533 1440
- Sendu okkur tölvupóst á outcome@outcome.is
- Fylltu út einfalt rafrænt eyðublað og sendu til okkar
Umsagnir
„Lipurt og hjálpsamt starfsfólk"
Sigrún Ingimarsdóttir
Verkefnastjóri - LSH
Meðal viðskiptavina
Leit









