Framkvæmdarferill
Framkvæmdarferill
Framkvæmd kosninga og atkvæðagreiðslna getur verið með mismunandi móti allt eftir eðli og umfangi þeirra. Til þess að einfalda yfirsýn yfir mismunandi atkvæðagreiðslu- eða kosningalausnir hefur Outcome hugbúnaður skilgreint þá ferla sem hægt er að nýta með Outcome Kosningakerfinu.
Kostnaður við framkvæmd veltur á eðli og umfangi hverrar atkvæðagreiðslu eða kosningar fyrir sig, hins vegar eru ákveðnir þættir alltaf innifaldir. Þeir eru hönnun kjörseðils með merki verkkaupa, útsending og niðurstöðuskýrsla. Jafnframt fær viðskiptavinur daglega upplýsingar um þátttöku. Til þess að einfalda yfirsýn yfir þjónustuna eru hér listaðar nokkrar mismunandi tegundir lausna sem í boði eru við rafrænar atkvæðagreiðslur eða kosningar. Listinn er hins vegar engan veginn tæmandi.
Algengustu lausnirnar eru:
- Kosning með tölvupósti
- Kosning á vef
- Blönduð kosning á vef og með tölvupósti
- Staðbundnar kosningar / atkvæðagreiðslur
- Kosningar með mismunandi atkvæðavægi
Umsagnir
„Einfalt og þægilegt kannanakerfi sem uppfyllir okkar öryggis- og gæðakröfur"
Hrannar Már Hallkelsson
Teris




