Beint á leiðarkerfi vefsins

Vefstjórinn

VefstjórinnEinfalt en öflugt vefumsjónarkerfi 
Outcome Vefstjórinn er einfalt og notendavænt vefumsjónarkerfi sem auðveldar rekstur og uppfærslur vefja til muna. Vefstjórinn er vefumsjónarkerfi sem Outcome hugbúnaður hefur forritað og uppfært allt frá stofnun fyrirtækisins.

Notendavænt kerfi

Kerfið, sem nýtt er af hundruðum aðila, hefur margsannað sig sem þægilegt og aðgengilegt vefumsjónarkerfi.  Kerfið hentar jafnt litlum sem stórum aðilum sem vilja öflugt kerfi sem hver getur sinnt.  Með Outcome Vefstjóranum áttu auðvelt með að:

  • Uppfæra fréttir
  • Setja inn auglýsingar
  • Setja inn myndir
  • Setja inn töflur
  • Setja upp rafræn eyðublöð (skráning á námskeið o.þ.h.)

Lesa meira

Aðgengismál

Framsetning og útlit þess efnis sem sett er á vefinn er lykilárangursþáttur. Því er mikilvægt að hönnun sé fagmannlega unnin og taki mið af þeim reglum og hömlum sem birtingu á netinu eru settar. Fagleg vefhönnun er því mikilvægur grunnur að góðum vef. Outcome hugbúnaður greinir vefhönnun í megindráttum á tvenna vegu:

  • Árangursrík hönnun að undangenginni þarfagreiningu viðskiptavinar en jafnframt með tilliti til leitarvélabestunar og auðvelds aðgengis allra s.s. lesblindra og sjónskertra.
  • Smekkleg hönnun, en Outcome á í samskiptum við hönnuði í fremstu röð, sem valdir eru eftir eðli verksins.

Leitarvélabestun

Rannsóknir hafa sýnt fram á að flestir leita að á netinu með hjálp leitarvéla eins og google, yahoo og Bing (Windows Live Search). Mikilvægt er að uppsetning vefsins og vefumsjónakerfisins taki mið af þessum veruleika. Við uppsetningu vefja í Outcome vefstjóranum er sérstaklega tekið mið af aðferðum leitarvéla til að lesa vefinn.

Hafa samband

Hægt er að bóka fund með okkur þar sem við sýnum möguleika kerfisins og kynnum okkar þjónustu. Það er að sjálfsögðu án allra skuldbindinga.  Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Dæmi um vefi viðskiptavina

66north
Eures
FSH
SFR
Norðursigling
NMI
LÍÚ
Hagvangur
FÍ
SA
Annata
Atvinnumál kvenna
SART
SSF

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Íslenskt hugvit