Megineiningar Vefstjórans
Í Outcome Vefstjóranum er m.a. eftirtaldar einingar:
- Fullkominn ritill
Gefur notandanum möguleika til innsetningar efnis af margvíslegum toga s.s. myndir, margmiðlunarefni og töflur - Fyrirspurnakerfi
Býður upp á utanumhald fyrirspurna og svara ásamt margvíslegri annarri virkni - Auglýsingabirtingakerfi
Gefur notandanum möguleika á að stýra birtingu auglýsinga og tilkynninga í vefnum. Auðvelt er að vinna með margvísleg form og þ.m.t. Flash-birtingu. - Starfsmannakerfi
Býður upp á framsetningu og kynningu starfsfólks í einni eða mörgum deildum. - Eyðublaðasmiður
Gerir notandanum mögulegt að setja upp margvísleg umsóknar- og skráningarform, einföld og flókin. Auðvelt er að halda utan um skráningar og útflutningur gagna í Excel er til staðar. - Fréttakerfi
Gefur notandanum möguleika á fjölda fréttaflokka og birtingarstýringar þar sem hægt er að raða upp birtingarmáta og setja inn birtingarreglur. - Skráarstjóri
Auðveldar alla umsýslu og skipulag á gögnum vefsins. Geymir allar tegundir skjala og býr til myndir í stöðluðum stærðum sjálfvirkt. Ritvinnsluskjöl, glærukynningar, excel-skjöl, pdf-skjöl, myndir í mismunandi stærðum o.s.frv. - Viðburðadagatal
Heldur utan um ýmiskonar viðburði, hægt er að birta viðburði með ýmsum hætti s.s. í dagatali eða lista. Hægt er að skoða viðburði eftir árum, mánuðum eða dögum. - Spurt og svarað
Býður upp á utanumhald á spurningum í flokkum, þar sem hægt er að bjóða notendum upp á að spyrja spurninga og fá svör við þeim í gegnum kerfið. - Flýtival
Safn tengla sem hægt að birta óháð sjálfvirku veftré vefsins og nýtist vel til að taka saman hluti óháð staðsetningu þeirra á vefnum. - Myndagallerí
Heldur utan um myndasöfn á vefnum þar sem hægt er að stýra algjörlega hvað birtist og í hvaða stærðum. Margir möguleikar á birtingu myndagallerís á síðu.
Notendavænt umhverfi
Í uppsetningarhluta kerfisins birtist skipulag hans með mjög skýrum hætti og boðið er upp á einfalda tilfærslu skjala ( drag and drop ) sem hjálpar mjög við alla skipulagningu og endurröðun gagna þegar þess gerist þörf. Í kerfinu eru birtingarstýringar sem auðvelda alla ritstýringu og daglegan rekstur vefsins.
Hægt er að kalla fram hjálpartexta sem eru í kerfinu þegar þess gerist þörf og fá þannig leiðbeiningar á þeim augnablikum sem þess gerist þörf. Aðgangsstýringar gefa möguleika á úthlutun margvíslegra réttinda til þeirra sem að vefrekstrinum koma og einnig er um að ræða möguleika á að læsa hlutum vefsins þannig að ákveðnar síður opnist eingöngu eftir að lykilorð hefur verið slegið inn. Grunnkerfi Outcome Vefstjórans býður upp á að margir vefir rekist í einu kerfi og þannig getur eitt fyrirtæki eða stofnun haldið úti mörgum vefum sem þó eru allir geymdir í sama vefkerfinu.
Sífellt er unnið að endurbótum kerfisins og mikið er til af sértækum lausnum sem hægt er að fá uppsettar í Outcome Vefstjórann. Kerfið er smíðað á Íslandi og mótun þess hefur tekið mið af íslenskum aðstæðum og er nýtt af fjölda fyrirtækja og stofnana.
Umsagnir
„Outcome stenst okkar kröfur um nákvæmni, skipulag, áreiðanleika og vandvirkni"
Ásta Snorradóttir
Vinnueftirlitinu




